STRAMAKlínísk verkfæri
← Leit
Meðferð og skammtarSTRAMA 2026 · bls. 10

Þvagfærasýkingar hjá konum

  • Væg einkenni: verkjalyf og vökvi. Miðlungseinkenni: íhuga biðávísun. Mikil einkenni: sýklalyf.
  • Skammtar hér eiga við neðri þvagfærasýkingu hjá konum.

Brátt mat: Hiti yfir 38 °C eða verkur í síðu/baki getur bent til efri þvagfærasýkingar — sjá þann kafla.

Fullorðnir

Nitrofurantoin

5 dagar

50 mg þrisvar á dag

Ekki við GFR <45 mL/mín.

Pivmecillinam

5 dagar

200 mg þrisvar á dag

Pivmecillinam — styttri meðferð

3 dagar

400 mg tvisvar á dag

Fyrir tíðahvörf. Eftir tíðahvörf: 200 mg þrisvar á dag í 5 daga.

Trimethoprim — annað val

3 dagar

160 mg tvisvar á dag

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

STRAMA tilgreinir ekki sérstaka ofnæmisleið hér. Metið ofnæmi og frábendingar hvers lyfs; annað val er ekki sjálfkrafa ofnæmisval.

Undantekningar og athugið

  • Þvagræktun við meðgöngu, meðferðarbresti, endurkomu, nýlegri sjúkrahúslegu eða utanlandsdvöl. Ekki yfirfæra þessa skammta á börn, karla eða efri þvagfærasýkingu.
Greining og mat
  • Nýtilkominn sviði við þvaglát, tíð þvaglát og bráð þvaglátaþörf án einkenna frá leggöngum styðja greiningu. Metið mismunagreiningar og þörf á ræktun.

STRAMA 2026 · bls. 10 · Sjá frumheimild ↗

Leiðbeint mat

Klínískt mat

Einkenni

1 af 2
Einkenni frá þvagfærum
Eru einnig einkenni frá leggöngum?
Eru einkenni sem geta bent til efri þvagfærasýkingar?

Svörin eru ekki vistuð og hverfa þegar síðan er endurhlaðin.

Staðfestið ofnæmi, frábendingar, hámarksskammt og lyfjaform. Engin sjúklingagögn vistuð.

Heimild
STRAMA 2026Opna PDF ↗

Vélunninn texti; dálkar og töflur geta raðast öðruvísi en í PDF. Frumskjalið ræður við vafa.

Þvagfærasýkingar hjá konum

Síða 10

Bakgrunnur

Bráð blöðrubólga hjá konum er óþægileg en er oftast skaðlaus.

30% þeirra verða einkennalausar innan viku án nokkurrar sýklalyfjameðferðar. Meðferð styttir tímann sem einkennin vara. Áhættan á að ómeðhöndluð blöðrubólga þróist í efri þvagfærasýkingu er lítil.

Greining

Ef tvö eða fleiri einkenni eru til staðar hjá konum (sem ekki eru barnshafandi) sem ekki hafa einnig einkenni frá leggöngum eru miklar líkur á að blöðrubólga sé til staðar.

  • Sviði
  • Endurtekin þörf á þvaglátum
  • Þvaglát tíð Takið sýni til rannsóknar, vakni grunur um kynsjúkdóm.

Hiti yfir 38°C eða verkur í síðu/baki getur bent til bráðrar nýrnasýkingar.

Þvag í ræktun ef: sjúklingur er barnshafandi, meðferð bregst, sjúklingi slær niður, eða hefur nýlega dvalið á sjúkrahúsi eða erlendis.

Sýklalyfjameðferð fullorðinna

Væg einkenni: verkjalyf og ríkuleg vökvainntaka.

Miðlungseinkenni: sbr. hér að ofan en einnig sýklalyf í lyfjagátt ef ekki verður bati.

Mikil einkenni: sbr. hér að ofan og sýklalyfjameðferð.

Fyrsta val

Nitrofurantoin 50 mg x 3 á dag í 5 daga (ath. GFR<45 er frábending)

eða Pivmecillinam 200 mg x 3 á dag í 5 daga eða Pivmecillinam 400 mg x 2 á dag í 3 daga (valkostur fyrir konur fyrir tíðahvörf, mælt með lengri kúr, 200 mg x 3 á dag í 5 daga fyrir konur eftir tíðahvörf)

Annað val

Trimetoprim 160 mg x 2 á dag í 3 daga.