STRAMAKlínísk verkfæri
← Leit
Meðferð og skammtarSTRAMA 2026 · bls. 5, 6

Skútabólga

  • ≤10 dagar, væg–miðlungseinkenni: einkennameðferð.
  • Þrálát eða versnandi einkenni: metið bakteríusýkingu.

Brátt mat: Mikill verkur, staðbundin bólga/þroti, hár hiti eða skert almennt ástand kallar á brátt mat. Barn með bólgu kringum auga og hita þarf tafarlaust mat barnalæknis/HNE-læknis.

Fullorðnir

Amoxicillin

7 dagar

1 g þrisvar á dag

Phenoxymethylpenicillin

7 dagar

1 g þrisvar á dag

Við vægari einkenni.

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

Doxycyclin

7 dagar

200 mg fyrsta dag, síðan 100 mg einu sinni á dag

Börn

  • Engin sýklalyf við óbrotinni skútabólgu.

Undantekningar og athugið

  • Saltvatnsskolun, nefslímhúðarsamdráttarlyf og nefsterar geta létt einkenni. Lyfjaskammtar þessara úrræða eru ekki tilgreindir í kaflanum.
Greining og mat
  • Einkenni í >10 daga, graftarkennt nefrennsli, mikill einhliða verkur eða versnun eftir um 5 daga auka grun um bakteríusýkingu. Metið klínísk einkenni saman.
  • Við langvinnt einhliða nefrennsli hjá barni: hugið að aðskotahlut.
Eftirfylgd
  • Við versnun skal endurmeta; bráð augneinkenni, staðbundinn þroti og almenn veikindi kalla á mat vegna fylgikvilla.

STRAMA 2026 · bls. 5, 6 · Sjá frumheimild ↗

Leiðbeint mat

Klínískt mat

Sjúklingur

1 af 3
Sjúklingur

Svörin eru ekki vistuð og hverfa þegar síðan er endurhlaðin.

Staðfestið ofnæmi, frábendingar, hámarksskammt og lyfjaform. Engin sjúklingagögn vistuð.

Heimild
STRAMA 2026Opna PDF ↗

Vélunninn texti; dálkar og töflur geta raðast öðruvísi en í PDF. Frumskjalið ræður við vafa.

Skútabólga hjá fullorðnum

Síða 5

Bakgrunnur

Við efri loftvegasýkingar bólgna slímhúðir í nefi og nefholum. Algeng einkenni eru nefrennsli, nefstífla, þrýstingstilfinning og verkir í andliti.

Bráð kinnholubólga vegna bakteríusýkingar sem þarfnast meðferðar er sjaldgæf. Einkenni geta verið langdregin en fylgikvillar eru mjög sjaldgæfir.

Við mjög langdregin einkenni, vikur og mánuði ætti að leita að öðrum skýringum einkenna en loftvegasýkingu. Þeim sem reykja ætti ætíð að bjóða meðferð og stuðning til reykleysis.

Greining

Efri öndunarfærasýking ≤ 10 daga með lituðu nefrennsli, lítill til meðalsár verkur í andliti/kinnkjálka = sjálfmeðhöndlun með nefskolun, venjulegum nefúða og/eða steranefúða.

Efri öndunarfærasýking > 10 daga með lituðu nefrennsli, eða skyndilegum sárum verk í andliti/kinnkjálka, eða versnun einkenna eftir u.þ.b. 5 daga einkenni = sjúklingur komi til læknis til skoðunar.

Tímalengd og versnun einkenna geta gefið vísbendingar til að greina á milli einkenna frá nefi og nefholum tengdum veirusýkingum og nefholusýkingum af völdum baktería.

Einkenni sem geta bent til bakteríusýkingar í nefholum:

  • Verkur öðru megin í andliti
  • Verkur í tönnum
  • Vond lykt í nefi
  • Grænt nefrennsli/hor
  • Hiti yfir 38 gráður
  • Grænt slím/vilsa undir miðnefskel (conchae med) eða á bakvegg koksins

Alvarleg einkenni

Sjúklingar með sára verki, staðbundnar bólgur eða háan hita taka án tafar ákvörðun um meðferð og hvort senda eigi sjúkling á göngudeild HNE eða bráðamóttöku.

Langvarandi einkenni frá nefholum

Margar mismunandi ástæður mögulegar, svo sem ofnæmi, tannsýkingar og separ. Íhuga skal tilvísun til háls nefog eyrnalæknis.

Sýklalyfjameðferð fullorðinna

Amoxicillin 1 g x 3 eða phenoxymethylpenicillin 1 g x 3 á dag við vægari einkennum í 7 daga.

Þekkt penicillinofnæmi: Doxycyclin 200 mg fyrsta daginn og síðan 100 mg x 1 á dag í 7 daga.

Skútabólga hjá börnum

Síða 6

Bakgrunnur

Börn fá yfirleitt efri öndunarfærasýkingu (kvef) 6-8 sinnum á ári. Börn geta verið með litað hor, jafnvel lengi, án þess að þarfnast sýklalyfjameðferðar.

Sýklalyf gagnast ekki börnum með fylgikvillalausa skútabólgu.

Gáið að aðskotahlut sé barn með stöðugt graftarkennt nefrennsli frá annarri nösinni.

Almennar ráðleggingar

Bráð einkenni sem byrja með sárum verk, staðbundnum þrota, háum hita og almennum áhrifum, þ.m.t. slappleika gætu bent til sáldbeins eða ennisskútabólgu.

Þessum sjúklingum ætti að veita tafarlausa meðferð og vísa áfram til barnalæknis eða háls nef og eyrnalæknis.

Sjá frekar undir liðnum „Merki um alvarlega sýkingu hjá börnum“ aftast í bæklingnum