STRAMAKlínísk verkfæri
← Leit
Meðferð og skammtarSTRAMA 2026 · bls. 8

Berkjubólga og lungnabólga hjá fullorðnum

Lungnabólga hjá fullorðnum

  • Grunur um bakteríulungnabólgu: sýklalyf. Metið innlagnarþörf út frá ástandi, blóðþrýstingi, öndunartíðni og aldri.

Fullorðnir

Amoxicillin

7 dagar

1 g þrisvar á dag

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

Doxycyclin

Lengd ekki tilgreind

200 mg fyrsta dag, síðan 100 mg einu sinni á dag

Einnig við grun um óhefðbundna sýkingarvalda. Meðferðarlengd ekki tilgreind hér í STRAMA.

Azithromycin

3 dagar

500 mg einu sinni á dag

Einnig við grun um óhefðbundna sýkingarvalda.

Greining og mat
  • Metið almennt ástand, öndunartíðni, blóðþrýsting og aldur. Við óvissu getur lungnamynd hjálpað.
  • CRP >100 mg/L með viðeigandi einkennum styður bakteríulungnabólgu. Eftir >1 viku einkenni getur CRP >50 stutt greiningu. CRP <20 eftir >24 klst. mælir sterklega gegn lungnabólgu sem þarfnast sýklalyfja.
Eftirfylgd
  • Versnun eða enginn bati eftir 1–2 daga: endurmat.
  • Eftirlit eftir 6–8 vikur; klínískt mat og lungnamynd sérstaklega hjá eldri sjúklingum og reykingafólki.

STRAMA 2026 · bls. 8 · Sjá frumheimild ↗

Leiðbeint mat

Klínískt mat

Klínískt mat

1 af 3
Hvaða klíníska mynd á best við?
Gefa almennt ástand, blóðþrýstingur, öndunartíðni eða aldur tilefni til innlagnarmats?

Svörin eru ekki vistuð og hverfa þegar síðan er endurhlaðin.

Staðfestið ofnæmi, frábendingar, hámarksskammt og lyfjaform. Engin sjúklingagögn vistuð.

Heimild
STRAMA 2026Opna PDF ↗

Vélunninn texti; dálkar og töflur geta raðast öðruvísi en í PDF. Frumskjalið ræður við vafa.

Bráð berkjubólga og lungnabólga hjá fullorðnum

Síða 8

Bráð berkjubólga Bráð berkjubólga einkennist af hósta, með eða án uppgangs hjá einstaklingi sem ekki hefur þekktan undirliggjandi langvinnan lungnasjúkdóm.

Við hlustun heyrast dreifð aukahljóð, gróf slímhljóð eða önghljóð (ronchi). Orsökin er oftast veirusýking og sýklalyfjameðferð er ekki gagnleg.

Reykingasaga ætti ávallt að leiða til öndunarmælingar (spirometriu) þegar bata er náð.

Saga sem gæti bent til astma (ofnæmi, exem, ættarsaga, áreynslumæði) ætti að leiða til nánara mats með tilliti til þess.

Meðferð

Sýklalyf gagnast yfirleitt ekki þar sem oftast er um veirusýkingu að ræða.

Lungnabólga Sjúklingur er oft veikindalegur, oft með hraðöndun (tachypnea) >20/mín. eða hjartahraðslátt >120/ mín. Hiti, hósti, mæði, nýtilkomin áberandi þreyta og takverkur.

Algeng teikn: Staðbundið dregið úr öndunarhljóðum, staðbundin aukahljóð (brak) eða bankdeyfa Ekki þarf CRP ef klár klínísk einkenni lungnabólgu liggja fyrir, en getur komið að gagni við eftirfylgd. Yfirleitt þarf ekki lungnamynd til að staðfesta greiningu.

Meta þarf alvarleika m.a. út frá almennu ástandi, blóðþrýstingi, öndunartíðni og aldri mt.t. hugsanlegrar innlagna.

Sýklalyfjameðferð fullorðinna

Amoxicillin 1 g x 3 á dag í 7 daga.

Við penicillinofnæmi eða grun um ódæmigerða (atypiska) lungnabólgu: Doxycyclin 200 mg fyrsta daginn og síðan 100 mg x 1 á dag eða Azithromycin500 mg x 1 á dag í 3 daga.

Eftirfylgd

Klínískt eftirlit (símtal eða skoðun) eftir 6-8 vikur og myndgreining af lungum hjá eldri einstaklingum og sérstaklega hjá þeim sem hafa sögu um reykingar. Mikilvægt að leggja áherslu á endurmat ef einkenni versna eða byrja ekki að lagast á 1-2 sólarhringum.

Óviss sýking í neðri öndunarfærum

CRP getur verið gagnlegt við mat á óskýrari einkennum svo sem hósta, hita, óljósum öndunaróþægindum, með almennri vanlíðan en hafa þarf í huga lengd sjúkdómseinkenna

  • CRP >100 mg/l + klíník bendir til lungnabólgu, hugleiðið sýklalyf.
  • CRP <20 mg/l eftir >sólarhring (24 klst) útilokar lungnabólgu sterklega, engin sýklalyf.
  • Einkenni > 1 vika + CRP >50 bendir til lungnabólgu, hugleiðið sýklalyf.
  • Íhugið röntgenmynd af lungum.