STRAMAKlínísk verkfæri
← Leit
Meðferð og skammtarSTRAMA 2026 · bls. 9

Berkjubólga og lungnabólga hjá börnum

Lungnabólga hjá börnum

  • Líkleg bakteríulungnabólga: sýklalyf. Metið almennt ástand, lífsmörk og tilvísunarþörf.

Brátt mat: Sjá alvarleikamat barna við hraðöndun, inndrátt, súrefnisskort eða skert almennt ástand.

Börn

Amoxicillin

5–10 dagar

80 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

Azithromycin

Samtals 3–6 dagar

10 mg/kg fyrsta dag, síðan 5 mg/kg einu sinni á dag

Einnig við grun um óhefðbundna sýkingu. Ekki skráð fyrir börn yngri en 1 árs samkvæmt STRAMA.

Cefalexin

Lengd ekki tilgreind

25–50 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta

Mögulegt krossofnæmi; ekki við bráðaofnæmi, alvarlegu eða óljósu penicillínofnæmi.

Flýtiblað · skammtar og þyngdarbil

80 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta · 5–10 dagar

Amoxicillin · 3 sinnum á dag
Skammtur í sennÞyngd barns
200 mg7,5 kg
400 mg15 kg
600 mg22,5 kg
800 mg30 kg
1.000 mg37,5 kg

5–40 kg · skammtur innan STRAMA-bils á öllu þyngdarbilinu. Staðfestið aldur, hámark og lyfjaform.

Fastur mg/kg-skammtur: hver lína gildir aðeins fyrir tilgreinda þyngd.

Greining og mat
  • Almennt veikara barn með hita, hósta og hraðöndun. Metið almennt ástand og lífsmörk fremur en CRP eitt og sér.
  • CRP >80 mg/L með viðeigandi einkennum styður bakteríulungnabólgu; <10 eftir >24 klst. mælir sterklega gegn henni.
Eftirfylgd
  • Símtal innan 3 daga. Enginn bati: endurmat, hugsanlega lungnamynd. Við grun um Mycoplasma má íhuga erythromycin samkvæmt heimild; skammtur er ekki tilgreindur.

STRAMA 2026 · bls. 9 · Sjá frumheimild ↗

Leiðbeint mat

Klínískt mat

Barn

1 af 4

Svörin eru ekki vistuð og hverfa þegar síðan er endurhlaðin.

Staðfestið ofnæmi, frábendingar, hámarksskammt og lyfjaform. Engin sjúklingagögn vistuð.

Heimild
STRAMA 2026Opna PDF ↗

Vélunninn texti; dálkar og töflur geta raðast öðruvísi en í PDF. Frumskjalið ræður við vafa.

Bráð berkjubólga og lungnabólga hjá börnum

Síða 9

Bráð berkjubólga Barnið ekki bráðveikindalegt, ekki með hraðöndun (tachypnea) en með slæman hósta og stundum hita. Algeng einkenni: Aukahljóð frá báðum lungum.

Meðferð

Sýklalyf gagnast ekki þar sem oftast er um veirusýkingar að ræða. Leggið til endurmat ef almenn einkenni versna, vaxandi öndunarerfiðleikar eða ef barnið vill ekki drekka. Við einkenni um teppu er ráðlagt að gefa berkjuvíkkandi lyf.

Lungnabólga Veikindalegt barn með hita, hraðöndun og hósta, sem er þó ekki alltaf til staðar. Ekki þarf CRP þegar örugg, klínísk greining lungnabólgu liggur fyrir, en getur haft þýðingu við eftirfylgd.

Hraðöndun er mikilvægt merki um lungnabólgu: >50/mín hjá börnum <1 árs og >40/mín hjá börnum >1 árs eða öndunarerfiðleikar hjá eldri börnum.

Sýklalyfjameðferð barna

Metið hversu alvarlegt ástandið er áður en ákvörðun er tekin um hvort vísa eigi barninu á bráðamótöku. Sjá meira í síðasta kafla bæklingsins „Merki um alvarlega sýkingu hjá börnum“.

Amoxicillin 80 mg/kg/dag skipt í 3 skammta á dag í 5-10 daga.

Azitromycin við grun um ódæmigerða (atypiska) lungnabólgu, sjá neðan Við penicillinonæmi Azitromycin 10 mg/kg í fyrsta skammt síðan 5mg/kg á dag, einn skammtur á dag í samtals 3-6 daga. (ekki skráð fyrir yngri en 1 árs) eða Cefalexin (ef ekki saga um bráðaofnæmi) 25-50 mg/kg/ dag skipt í 3 skammta.

Eftirfylgd

Símtal innan þriggja daga. Hafi engin bati orðið, endurmetið þá greininguna og fáið ef til vill lungnamynd. Sé grunur um mýkoplasma mætti setja barnið á erýtromýcín.

Óviss sýking í neðri öndunarfærum

CRP getur verið gagnlegt við mat á börnum sem eru eitthvað veikindaleg, með hita, þreytt en ekki sljó og með eitthvað hraðari öndun án hraðöndunar (tachypnea), en hafa þarf í huga tímalengd einkenna.

CRP >80 + klíník bendir til lungnabólgu, hugleiðið sýklalyf.

CRP <10 eftir >sólarhring (24 klst) útilokar lungnabólgu sterklega.