STRAMAKlínísk verkfæri
← Leit
Meðferð og skammtarSTRAMA 2026 · bls. 12, 13, 14

Húð- og sárasýkingar

Hrúðurgeit

  • Hreinsun með sápu og vatni.
  • Ef hreinsun dugar ekki: fúcidínsmyrsli 2–3×/dag í 5 daga; athugið ónæmishættu.
  • Sýklalyf um munn: útbreidd/versnandi, blöðrumyndandi eða svarar ekki staðbundinni meðferð.

Fullorðnir

Dicloxacillin

Lengd ekki tilgreind

1 g þrisvar á dag

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

Clindamycin

Lengd ekki tilgreind

300 mg þrisvar til fjórum sinnum á dag

Börn

Cefalexin

7 dagar

25–50 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta

Við penicillínofnæmi er clindamycin ofnæmisval í þessum kafla. Athugið mögulegt krossofnæmi cefalexins.

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

Clindamycin

7 dagar

15 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta

Undantekningar og athugið

  • Meðferðarlengd um munn hjá fullorðnum er ekki tilgreind í þessum kafla. Fúcidínsýra getur valið fyrir ónæmi.
Flýtiblað · skammtar og þyngdarbil

25–50 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta · 7 dagar

Við penicillínofnæmi er clindamycin ofnæmisval í þessum kafla. Athugið mögulegt krossofnæmi cefalexins.

Cefalexin · 3 sinnum á dag
Skammtur í sennÞyngd barns
50 mg5–6 kg
100 mg6–12 kg
150 mg10–15 kg
200 mg15–20 kg
250 mg15–30 kg
300 mg20–35 kg
350 mg25–40 kg
400 mg25–40 kg
450 mg30–40 kg
500 mg30–40 kg
550 mg35–40 kg
600 mg36–40 kg
650 mg39–40 kg

5–40 kg · skammtur innan STRAMA-bils á öllu þyngdarbilinu. Staðfestið aldur, hámark og lyfjaform.

Greining og mat
  • Hrúðurmyndandi sýking er oftast af völdum S. aureus og/eða grúppu A streptókokka. Blöðrumyndandi sýking sést oftast hjá smábörnum og tengist toxínmyndandi S. aureus.

STRAMA 2026 · bls. 12 · Sjá frumheimild ↗

Staðfestið ofnæmi, frábendingar, hámarksskammt og lyfjaform. Engin sjúklingagögn vistuð.

Heimild
STRAMA 2026Opna PDF ↗

Vélunninn texti; dálkar og töflur geta raðast öðruvísi en í PDF. Frumskjalið ræður við vafa.

Hrúðurgeit

Síða 12

Hrúðurgeit (Impetigo)

Bakgrunnur

Engar blöðrur (hrúðurmyndandi sýking) oftast Staph.aureus og/eða grúppu A betahemolýtískir streptokokkar. Blöðrur oftast hjá smábörnum toxínmyndandi Staph.aureus.

Meðferð

  • Hreinsið með sápu og vatni.
  • Útvortis sýklalyfjameðferð ef staðbundin hreinsun skilar ekki árangri. Þá fúcidínsmyrsli 2-3svar á dag í 5 daga.. Athugið að notkun fúcidínsýru getur leitt til ónæmis.
  • Sýklalyf til inntöku við útbreiddri eða versnandi hrúðurgeit, oft með blöðrum, og við hrúðurgeit sem svarar ekki staðbundinni meðferð.

Sýklalyfjameðferð

Börn

Fyrsta val: Cefalexínmixtúra 25-50 mg/kg/sólarhr. í þremur jöfnum skömmtum daglega í 7 daga.

Ef penicillínofnæmi: Clindamycin 15 mg/kg/sólarhr. í þremur jöfnum skömmtum daglega í 7 daga.

Fullorðnir

Dicloxacillin 1 gr x 3 Ef penicillín ofnæmi: Clindamycin 300 mg x 3-4

Heimakoma (Erysipelas)

Greining

Heimakoma einkennist af vel afmörkuðum, heitum, hugsanlega aumum húðröða sem breiðir hægt og sígandi úr sér. Oftast fylgir líka almenn vanlíðan og hiti/hrollur. Betahemolýtískir streptokokkar valda heimakomu, einkum Streptococcus pyogenes (gr A) og Streptococcus dysgalactiae (gr C og G).

Í vissum tilvikum þarf sýklalyfjagjöf í æð.

Metið hversu alvarlegt ástandið er og hvort þörf sé á innlögn.

Sýklalyfjameðferð fullorðinna

Fyrsta val: Phenoxymethylpenicillin 1 g x 3 í 10 daga *. Tvöfaldið skammtinn af Phenoxymethylpenicillini í 2 g x 3 í 10 daga* ef sjúklingur er 90-120 kg.

Ef penicillínofnæmi, þá Clindamycin 300 mg x 3-4 í 10 daga* *Meðferðarlengd getur verið lengri en 10 dagar og er háð svörun við meðferð.

Sárasýking

Síða 13

Bakgrunnur

Klínísk einkenni sýkingar: roði, bólga, hiti og nýtilkominn verkur.

Alvarleg sár og sýkt sár eru hreinsuð vel með sápu og vatni. Þegar sár gróa eðlilega má búast við roða og vessa án þess að um sýkingu sé að ræða.

Kýli (abscess) er mikilvægast að mehöndla með opnun, stungu/skurði og dreni. Ekki alltaf þörf fyrir sýklalyf einnig.

Meðferð

Ábending fyrir sýklalyf ef merki eru um dreifða sýkingu eða þegar hún nær til dýpri húðlaga.

Sýklalyfjameðferð fullorðinna og barna

Fullorðinsskammtar: Dicloxacillin 1 g x3 á dag í 7 daga. Ef penicillin ofnæmi, þá Clindamycin 300 mg x 3-4 í 7 daga.

Barnaskammtar: Cefalexin 25-50 mg/kg/dag skipt í 3 skammta. Ef penicillin ofnæmi þá Clindamycin 15 mg/kg/dag skipt í 3 skammta.

Þrálát fótasár

Síða 14

Bakgrunnur

Þrálát fótasár geta verið einkenni á undirliggjandi sjúkdóm svo sem bláæða eða slagæðasjúkdóm.

Einkenni sem geta bent til sýkingar í þrálátu sári eru nýtilkominn aukinn eða breyttur verkur, illalyktandi vessi eða aukinn vessi, bjúgur í kringum sárið og aukinn roði.

Meðferðin ætti að beinast að undirliggjandi orsök. Þrálát fótasár eru oftast menguð af bakteríum en ræktun ætti að yfirvega þegar versnun verður sem bendir til sýkingar.

Staðbundin meðferð við sýkingum er mikilvæg.

Ábending fyrir sýklalyfjameðferð um munn er bráð versnun með einkennum heimakomu, ræktunarniðurstöðu með Streptococcus pyogenes ( gr A) eða Streptococcus dysgalactiae (gr C og G), almennum veikindum, hita og meiri útbreiðslu sýkingar.

Sýklalyfjameðferð fullorðinna

Phenoxymethylpenicillin 1g x3 eða Dicloxacillin 1g x3 á dag í 10 daga.

Þekkt penicillinofnæmi: Clindamycin 300mg x3-4 á dag í 10 daga.