STRAMAKlínísk verkfæri
← Leit
Meðferð og skammtarSTRAMA 2026 · bls. 3, 4

Bráð miðeyrnabólga

Bráð miðeyrnabólga

  • Sýklalyf: <1 árs, >12 ára, fylgikvillar/aukin áhætta, rofin hljóðhimna eða tvíhliða bólga <2 ára.
  • 1–12 ára, óbrotin bólga: virk bið. Óviss greining án fylgikvilla: ekki sýklalyf.

Brátt mat: Roði, bólga eða eymsli yfir stikli, útstætt eyra eða alvarleg almenn veikindi: tafarlaust mat á bráðamóttöku barna eða hjá HNE-lækni.

Fullorðnir

Amoxicillin

5 dagar

1 g þrisvar á dag

Phenoxymethylpenicillin

5 dagar

1 g þrisvar á dag

Annar kostur samkvæmt STRAMA.

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

Azithromycin

3 dagar

500 mg einu sinni á dag

Doxycyclin

7 dagar

200 mg fyrsta dag, síðan 100 mg einu sinni á dag

Börn

Amoxicillin

5 dagar

50–80 mg/kg/sólarhring, skipt í 2–3 skammta

Venjulegur til hár skammtur; miðað við klínískt mat og fyrri sögu.

Phenoxymethylpenicillin

5 dagar

40–50 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta

Við vægari einkennum.

Penicillínofnæmi / aðrir kostir

Azithromycin

Samtals 4 dagar

10 mg/kg fyrsta dag, síðan 5 mg/kg á dag

Cefalexin

5 dagar

50 mg/kg/sólarhring, skipt í 3 skammta

Mögulegt krossofnæmi; ekki við alvarlegu eða óljósu penicillínofnæmi.

Undantekningar og athugið

  • Árangurslaus meðferð í að minnsta kosti 3 sólarhringa eða ný bólga innan mánaðar: endurmetið; háskammtur amoxicillins ef hann var ekki notaður, annars amoxicillin/clavulansýra (sjá sérstakan valkost hér).
  • Vot röreyrnabólga, að öðru leyti einkennalaus: Hydrocortison m. Terram. 2–3 dropar, 2–3 sinnum á dag í 5–7 daga.
Flýtiblað · skammtar og þyngdarbil

50–80 mg/kg/sólarhring, skipt í 2–3 skammta · 5 dagar

Venjulegur til hár skammtur; miðað við klínískt mat og fyrri sögu.

Amoxicillin · 2 sinnum á dag
Skammtur í sennÞyngd barns
150 mg5–6 kg
200 mg5–8 kg
250 mg7–10 kg
300 mg8–12 kg
350 mg9–14 kg
400 mg10–15 kg
450 mg12–18 kg
500 mg15–20 kg
550 mg15–20 kg
600 mg15–20 kg
650 mg20–25 kg
700 mg20–25 kg
750 mg20–30 kg
800 mg20–30 kg
850 mg25–30 kg
900 mg25–35 kg
950 mg25–35 kg
1.000 mg25–40 kg
1.050 mg30–40 kg
1.100 mg30–40 kg
1.150 mg30–40 kg
1.200 mg30–40 kg
1.250 mg35–40 kg
1.300 mg35–40 kg
1.350 mg35–40 kg
1.400 mg35–40 kg
1.450 mg37–40 kg
1.500 mg38–40 kg
1.550 mg39–40 kg
1.600 mg40 kg

5–40 kg · skammtur innan STRAMA-bils á öllu þyngdarbilinu. Staðfestið aldur, hámark og lyfjaform.

Greining og mat
  • Greining byggist á einkennum og skoðun hljóðhimnu; metið hreyfanleika hennar. Við óvissa greiningu og enga fylgikvilla er ekki ráðlögð sýklalyfjagjöf óháð aldri.
  • Metið fylgikvilla og aukna áhættu með klínísku mati. Tvær sýktar hliðar undir 2 ára aldri og rofin hljóðhimna breyta ábendingu fyrir sýklalyfjum.
Eftirfylgd
  • Versnun eða viðvarandi einkenni: endurmat. Endurteknar bólgur (≥3 á 6 mánuðum eða ≥4 á ári): vísa til HNE-læknis.
  • Einhlíða bólga án fylgikvilla og hitt eyra eðlilegt: ekki þörf á eftirliti. Undir 4 ára með tvíhliða bólgu eða vökva í hinu eyra: eftirlit eftir 3 mánuði.
  • Vökvi beggja vegna í 3 mánuði með heyrnarskerðingu: HNE-mat; án heyrnarskerðingar: eftirlit í heilsugæslu eftir 3 mánuði.

STRAMA 2026 · bls. 3, 4 · Sjá frumheimild ↗

Leiðbeint mat

Klínískt mat

Erindi og sjúklingur

1 af 5
Hvað á að meta?
Sjúklingur

Svörin eru ekki vistuð og hverfa þegar síðan er endurhlaðin.

Staðfestið ofnæmi, frábendingar, hámarksskammt og lyfjaform. Engin sjúklingagögn vistuð.

Heimild
STRAMA 2026Opna PDF ↗

Vélunninn texti; dálkar og töflur geta raðast öðruvísi en í PDF. Frumskjalið ræður við vafa.

Bráð miðeyrnabólga

Síða 3

Bakgrunnur

Bráð miðeyrnabólga í börnum læknast oftast af sjálfu sér án sýklalyfjameðferðar. Alvarlegir fylgikvillar eins og stikilbólga (mastoiditis) eru sjaldgæfir. Sýklalyfjameðferð dregur úr hættu á stikilbólgu en útilokar hana ekki.

Greining

Greiningarviðmið

  • Hratt vaxandi einkenni, svo sem eyrnaverkur, grátur, pirringur, hiti, hefur hægar um sig / svefn / matarlyst
  • minnkar, oftast samtímis sýkingu í efri öndunarfærum.
  • Skoðun leiðir í ljós hljóðhimnubólgu og ígerð í miðeyra eða hlust.
  • Hjálpartæki við greiningu:
  • Eyrnasjá með blæstri (pneumootoscopy), þrýstingsmælir og smásjá, helst ásamt hljóðholsmælingu.

Klínísk birtingarmynd

Meðferð

Mælst er til að barnið verði skoðað af lækni innan sólarhrings. Sjaldnast er tilefni til læknisskoðunar á kvöldin eða á nóttunni. Verði sjúklingurinn einkennalaus meðan hann bíður er engin þörf á skoðun. Bjóðið verkjalyf (parasetamól 15-20 mg/kg). Hafa hátt undir höfði.

Við íþyngjandi einkenni (t.d. svefndrunga, barnið á ekki eðlileg tjáskipti, hlær hvorki né brosir, er pirrað) eða einhver merki um stikilbólgu (roða, bólgu, eymsli bak við eyrað eða útbungandi eyra)

skal skoða sjúklinginn tafarlaust og vísa til háls-, nefog eyrnalæknis eða bráðamóttöku barna. Sjá meira í síðasta kafla bæklingsins „Merki um alvarlega sýkingu hjá börnum“.

Mælt er með að hefja ekki sýklalyfjameðferð en endurskoða ef ekki verður bati eða ástand versnar:

  • Börn 1-12 ára eru örugglega greind með bráða miðeyrnabólgu, án fylgikvilla eða aukinnar hættu á þeim.
  • Sjúklingar á hvaða aldri sem er með óvissa greiningu um bráða miðeyrnabólgu án fylgikvilla eða aukinnar
  • hættu á þeim.

Við örugga greiningu á bráðri miðeyrnabólgu er mælt með sýklalyfjameðferð fyrir:

  • Börn 1-12 ára með bráða miðeyrnabólgu og fylgikvilla eða aukna hættu á þeim.
  • Börn yngri en 1 árs, unglinga eldri en 12 ára, og fullorðna.
  • Börn yngri en 2 ára með bráða miðeyrnabólgu í báðum eyrum, ásamt öllum sjúklingum með rof á hljóðhimnu á hvaða aldri sem er.

Örugglega bráð miðeyrnabólga Graftarkenndur vökvi í miðeyra, hljóðhimna útbungandi, ógegnsæ, með breyttum lit eða stíf.

Óvissa um miðeyrnabólgu Hljóðhimna ógegnsæ, breytt á lit, stíf en ekki útbungandi, eða ekki hægt að meta hljóðhimnu.

Ekki bráð miðeyrnabólga Hljóðhimna breytt á lit, en bifanleg, eða gegnsæ, inndregin eða íeðlilegri stöðu, stíf. (= vökvi í miðeyra).

Bráð miðeyrnabólga - sýklalyfjameðferð og eftirfylgni

Síða 4

Sýklayfjameðferð

Börn

Amoxicillin mixt 50-80 mg/kg/dag (venjulegur háskammtur) skipt í 2-3 skammta í 5 daga, þar sem skammtastærð ræðst af klínísku mati og fyrri sögu, eða phenoxymethylpenicillin 40-50 mg/kg/ dag skipt í 3 skammta í 5 daga við vægari einkennum.

Þekkt penicillin ofnæmi: Azithromycin 10 mg/kg á dag í fyrsta skammt og síðan 5 mg/kg á dag í samtals 4 daga eða ef ekki saga um alvarlegt ofnæmi Cefalexin 50 mg/kg/dag skipt í 3 skammta í 5 daga.

Við eyrnabólgu sem svarar ekki meðferð eða greinist aftur innan mánaðar er ráðlagt að velja háskammta Amoxicillin hafi það ekki verið gert upphaflega eða Amoxicillin/clavulansýru 45/6,4 mg/ kg/dag skipt í 2 skammta. Íhuga má að gefa allt að 70/10 mg/kg/dag skipt í 2 skammta en þó ekki hjá yngri en 2ja ára (sjá sérlyfjaskrá)

Fullorðnir

Amoxicillin 1g x 3 eða Phenoxymethylpenicillin 1g x 3 á dag í 5 daga Þekkt penicillin ofnæmi: Azithromycin 500 mg x 1 á dag í 3 daga eða Doxycyclin 200 mg fyrsta daginn og síðan 100 mg x 1 á dag í 7 daga.

Endurtekin sýking = ný bráð miðeyrnabólga innan mánaðar frá því að einkenni hurfu.

Árangurslaus meðferð = óbreytt eða að bráð miðeyrnabólga versnar eða blossar upp aftur, þrátt fyrir a.m.k. þriggja sólarhringa sýklalyfjameðferð. Almennt hefur ræktun úr nefkoki lítið gildi, en gæti þó gagnast ef grunur er um fjölónæma pneumokokka. Ef til vill ræktun frá miðeyra hafi komið gat á hljóðhimnu.

Endurteknar bráðar miðeyrnabólgur Að minnsta kosti 3 tilfelli bráðrar miðeyrnabólgu á 6 mánaða tímabili, eða minnst 4 tilfelli á einu ári.

Ef liðnir eru a.m.k. 6 mánuðir frá síðustu eyrnabólgu telst ný eyrnabólga vera tilfallandi.

Börnum með endurteknar bráðar miðeyrnabólgru (sbr. skilgreiningu að ofan) skal vísa til háls-, nef og eyrnalæknis.

Meðferð votrar „röreyrnabólgu“ Byrja á eyrnadropum (Hydrocortison m.Terram.) í 5-7 daga (2-3 dropar, 2-3svar á dag) ef sjúklingur er að öðru leyti einkennalaus.

Eftirfylgni bráðrar miðeyrnabólgu og eyrnabólgu með vökva Eftirfylgni bráðrar miðeyrnabólgu og eyrnabólgu með vökva í miðeyra Markmið með eftirfylgni er að greina börn með viðvarandi vökva í miðeyra eftir bráða miðeyrnabólgu sem getur haft áhrif á heyrn barnsins. Sjúklingum með einkenni sem ekki ganga til baka eða versna ætti að bjóða endurmat.

Ekki þörf á eftirliti Börn og fullorðnir með bráða miðeyrnabólgu í öðru eyranu án fylgikvilla og hitt eyrað eðlilegt.

Börn og fullorðnir með vökva í miðeyra öðru megin án vísbendinga um heyrnarskerðingu eða önnur óþægindi frá eyra.

Í vissum tilvikum er mælt með eftirliti: Börn yngri en 4 ára með bráða miðeyrnabólgu í báðum eyrum eða bráða miðeyrnabólgu í öðru eyra og vökva í hinu ætti að meta eftir 3 mánuði.

Ef vökvi er í báðum eyrum með vísbendingu um heyrnarskerðingu í 3 mánuði er mælt með áliti háls, nef og eyrnalæknis.

Ef vökvi er í báðum eyrum án vísbendinga um heyrnarskerðingu er mælt með eftirliti eftir 3 mánuði í heilsugæslu.